Aðalfundur Týs og komandi dagar

úff þarf að vera duglegri við að blogga!
Aðalfundur Týs var á miðvikudaginn. Ég var endurkjörinn í stjórn, þeir sem hverfa á braut eru Vífill og Víðir. En fullt af nýju fólki er einnig komið, og verður spennandi að sjá hvernig  næstu mánuðir verða.Í næstu viku er svo stofnfundur Kjördæmisráðs ungra í SV-kjördæmi. Það er frábært að fá þau samtök til að stuðla að meira samstarfi milli félagana, sérstaklega fyrir næstu mánuði til að peppa fólk saman fyrir komandi kosningar og landsfundinn, þar sem við ungir verðum að standa saman og sjá til þess að frelsi einstaklingsins verði ekki skotið niður í ályktunum.

myndi sama frétt birtast..

Ef komið hefði í ljós að eitthver borgarstjórnarflokkur (fyrir utan þá sem hafa bara einn) væri allt í einu eingöngu skipaður körlum?

Á borgarráðsfundi í dag tók Jón Jónsson við störfum af Guðrúnu Guðrúnsdóttir sem er farin í fæðingarorlof. Nú er borgarstjórnarflokkur xflokksins eingöngu skipaður körlum, og hefur það ekki gerst síðan kvenréttindabaráttan hófst.

 Ég held  nú síður. allt færi í háaloft, feministar og samfylkingin myndu fordæma þetta og kalla þetta kúgun..nema auðvitað þessi flokkur væri samfylkingin.


mbl.is Fjórar konur í borgarstjórnarflokki Samfylkingarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins..eða hvað?

Snjóframleiðsla er eitthvað sem hefur vantað á skíðasvæði ÍTR. Þeir stunda þetta víst mikið fyrir norðan í Hlíðarfjalli, með að mér skilst góðum árangri. Ef af þessu verður, getur maður loksins fundið meiri not fyrir snjóbrettið sitt heldur en bílskúrsskraut.

Hinsvegar hef ég oft velt fyrir mér afhverju  einka -aðilar sjái sér ekki hag í því að kaupa skíðasvæðin af sveitarfélögunum. Ég get rétt ímyndað mér að eins og staðan er í dag sé ekkert svakalega hagkvæmt að eiga eitt stk. skíðasvæði, þar sem opnunardagana má telja á fingrum annarrar handar. Einkaaðilinn væri þess vegna löngu búinn að fjárfesta í snjóframleiðslutækjum, jafnvel búinn að setja upp brekkur sem nota má að sumri til. Opnunardögum myndi eflaust snarfjölga, þar sem einkaaðilinn sér hag sinn í því að hafa opið sem oftast. Þetta myndi hafa vonandi þau áhrif að snjóbretta- og skíðamenningin myndi eflast, og aðstæður yrðu betri en í dag. 

Ég tel þetta hlut sem mætti skoða, þó svo að niðurstaðan yrði að skíðasvæðin væru betri í eign sveitarfélaganna.


mbl.is Samþykkt að kanna hagkvæmni snjóframleiðslu í Skálafelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flóttamannaflokkurinn

Ef svo fer að Sverrir og Margrét vilji fá nafn frjálslynda flokksins, þá ætti nú ekki að vera erfitt fyrir Guðjón að velja nýtt nafn. Auðvitað ætti hann að heita flóttamannaflokkurinn. Hann er stofnaður af flóttamönnum úr sjálfstæðismönnum, og nú nýlega eru tveir utanveltu þingmenn komnir yfir.

Skemmtilegt samt að Kristinn, sem maður hefur yfirleitt litið á sem mann á vinstri vængnum, skuli ganga í flokk sem  er hægra megin við miðju.. Greinilega staðfastur á sínum skoðunum!


mbl.is Kristinn segir sig úr Framsóknarflokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nafnið Benedikt

Ég hef verið að taka eftir því uppá síðkastið hversu margir skrifa Benedikt rangt. Margir eru þannig með þá dellu í hausnum á sér að það sé BenIdikt. Ég athugaði málið, það er enginn til sem heitir Benidikt, enda er þetta beint tekið úr latínu, Benédictine, sem þýðir hinn blessaði. Hljómar kannski eins og svakalegt tuð, en það er rosalegur þyrnir í augun að sjá svona misþyrmingu á nafni manns.

Annars er stefnan sett á bústað með stjórnarmeðlimum Týs um helgina. Það lofar góðu, enda eru fáir sem kunna að skemmta sér jafnvel og TýsararWink


hefja skal blogg..

jæja..hef tekið eftir því að maður er ekki maður með mönnum í dag nema maður bloggi..prófum þetta!

Um bloggið

Mitt blogg

Benedikt Hallgrímsson

Benedikt Hallgrímsson
Benedikt Hallgrímsson
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Tónlistarspilari

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 1961

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband